Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það var gagnlegt að fá það fram hjá hv. þm. að hann hefði ofsagt í fyrri ræðu sinni og að þessi smuga nýtist ekki öllum smærri sjávarbyggðum á Íslandi, þó hann að vísu léti þess getið að hann hefði ekki kynnt sér það sérstaklega.
Hitt er líka athyglisvert að hv. þm. sagði að ef sérstaklega stæði á væri rétt að smærri sjávarbyggðir fengju viðbótaraflamark með sérstökum hætti eins og hann orðaði það svo smekklega hér áðan, að sjútvrh. færi ofan í vasa sinn til þess að sækja aflaheimildir.
Það ber því svo að skilja hv. þm. líka að hann hafi ofsagt þegar hann sagði að stefna Samfylkingarinnar væri sú að vilja hafa almennar reglur um úthlutun veiðiheimilda og fiskveiðistjórnina. Þetta er hvort tveggja mjög athyglisvert.
Í fyrsta lagi viðurkennir hv. þm. að sú opnun sem verið hefur í smábátakerfinu að ákveðnar tegundir séu utan kvóta nýtist ekki öllum sjávarbyggðum. Þó hann hafi þann varnagla að hann hefði ekki kynnt sér málið viðurkennir hann að svo sé. Það er athyglisvert og hitt ekki síður að hann er fallinn frá því sem hann sagði í fyrri ræðu sinni að um fiskveiðistjórn ættu að gilda almennar reglur en ekki koma til pólitískt mat sjútvrh. eftir atvikum, get ég bætt við frá sjálfum mér, Byggðastofnunar eða annarra slíkra sem við vitum að reynslan sýnir að hefur ekki gefist vel. Þetta sýnir að Samfylkingin er á réttri leið. En ég vona að hv. þm. kveðji sér nú ekki hljóðs til þess að beina Samfylkingunni á hina fyrri leið á nýjan leik og fari nú rangsælis það sem eftir verður.