Gísli S. Einarsson:
Virðulegur forseti. Hvað kristallar þessi umræða? Hún kristallar að upplýsingum er leynt og það skapar tortryggni. Og eitt enn: Að verði hæstv. ráðherrum á, þá eru lögin óskýr.
Virðulegur forseti. Það mál sem við höfum rætt í dag er allt hið undarlegasta. Það ber að með þeim hætti að Flugmálastjórn og þar á eftir ráðuneytin gefa ekki upplýsingar í samræmi við spurningar. Þetta er sammerkt öllum stofnunum, nema embætti forseta Íslands, þar liggja fyrir gögn um tilefni ferða, hverjir hafa ferðast með vélinni, hvenær og svör veitt þar að lútandi.
Herra forseti. Það er nú ljóst að opinberum aðilum er skylt að geyma öll skrifleg gögn með öllum upplýsingum, annað er lagabrot.
Annar þáttur málsins sem hefur lítt verið ræddur er sú tregða að veita þingmanni upplýsingar og að afgreiða mál sem hann leggur fyrir. Þess vegna beini ég þeim eindregnu tilmælum til virðulegs forseta að gefnu tilefni að nefndir þingsins afgreiði þess háttar gögn a.m.k. innan mánaðar frá framlagningu. Að öðru leyti þakka ég umræðuna.