Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi kjörin hjá þeim aðila sem hefur hafið úthlutun heyrnartækja og þjónustu varðandi þau þá tók ég fram í framsöguræðu minni að í frv. sé gert ráð fyrir að leyfin séu háð sömu skilyrðum og eftirliti og þegar um er að ræða aðrar stofnanir eða fyrirtæki sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Gert er ráð fyrir að hjálpartækin verði veitt einstaklingum á svipuðum kjörum og hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni og þátttaka Tryggingastofnunar, ef af henni verður, yrði vafalaust miðuð við að kjörin verði sambærileg hvar sem þjónustan er veitt.