Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Já, mér er kunnugt um að það hafa verið miklir erfiðleikar í málefnum Raufarhafnar. Þaðan hafa verið miklir fólksflutningar. Þingmenn kjördæmisins hafa átt fund með forráðamönnum sveitarfélagsins. 1. þm. kjördæmisins gerði mér grein fyrir því máli á fundi sem ég átti með honum. Hæstv. iðn.- og viðskrh. tók síðan málið upp einnig á fundi ríkisstjórnarinnar í framhaldi af þessum fundum og þar var einnig farið yfir þau mál.
Þar voru ekki birtar eða kynntar lausnir sem við höfum getað lagt á borð fyrir Raufarhafnarbúa, íbúa þess sveitarfélags. Reyndar kom okkur á óvart hve mikil umskipti hefðu orðið þar, svo snögg og svo hröð. Hins vegar er alveg ljóst að menn þurfa að leita leiða til þess að styðja við bakið á byggðum á þessu svæði með þeim úrræðum sem til eru. Ég veit að þau mál verða skoðuð, bæði af hálfu Byggðastofnunar og eins geri ég ráð fyrir því að samgönguþátturinn verði skoðaður.
En það er ekki þar með sagt að við séum komnir fyrir allan vanda í þeim efnum þó að slíkir þættir yrðu skoðaðir. Eins og ég segi hefur þetta verið rætt við mig af hálfu 1. þm. í kjördæmisins og eins hefur iðn.- og viðskrh. tekið málið upp til sérstakrar umræðu á vettvangi ríkisstjórnarinnar.