Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Af því að við ræðum hér framhaldsskólanám, þá er rétt að rifja upp að rannsóknir sýna að menntunarstig hefur geysilega mikið að segja fyrir lífskjör og ekki síst ef tekst að auka menntun á framhaldsskólastigi. Mér finnst að við ættum að horfa til þess sem er að gerast um landið með þau gleraugu á nefinu frekar en hagkvæmnigleraugun vegna þess að þau gætu orðið okkur dýrari þegar fram í sækir, herra forseti.
Vegna þess að mér heyrist að hæstv. ráðherra telji sig geta leyst allt með miðlægum gagnagrunnum og tækni, þá er það einu sinni svo að nám snýst ekki bara um tækni, þó að hún geti verið ein af forsendum þess að nám geti farið fram. Hún snýst um ýmislegt fleira. Fólk sem ekki hefur að baki langa formlega menntun á mjög erfitt með að fara af stað í að mennta sig áfram eða meira og þarf til þess ákveðna hvatningu. Til þess nægir ekki tækni, herra forseti, til þess þurfum við fólk, skóla, aðhald og metnað.