Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Auðvitað vorum við ekki viss um að við næðum íslenska ákvæðinu í gegn fyrr en það lá fyrir. Hins vegar höfðum við von um það. Það er svo sem ekki hægt að segja að það hafi verið gert ráð fyrir því í þessum viðræðum. Það er ekki eins og það skilyrði hafi verið sett hjá þeim fyrirtækjum sem við eigum í viðræðum við að þau fjárfestu einungis á Íslandi ef íslenska ákvæðið næðist fram. Umræðan hefur aldrei snúist um það. Það er bónus að þetta skuli hafa getað gerst. En umræðan hefur aldrei gengið út á það að slíkt yrði skilyrði fyrir ákveðnum fjárfestingum á Íslandi.