Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég vil aðeins gera athugasemdir við það sem hæstv. ráðherra sagði í ræðu sinni varðandi ummæli mín um virkjanlegan orkuforða í landinu til að það misskiljist ekki. Ég vona að hæstv. ráðherra hafi heyrt að ég var að tala um þá tölu sem menn hafa oft hent á milli sín að væri virkjanleg með tilteknum frádrætti, þ.e. um 50 teravattstundir. Það hefur oft verið sett þannig fram að um 30 teravattstundir gætu komið úr vatnsaflinu og 20 úr jarðhitanum. Það var út frá þeirri tölu sem ég varaði menn við og sagði að ég teldi nær lagi að tala um 40--60% af þessu sem er þá miklu minna afl eða 20--30 teravattstundir og þá sjá menn t.d. hve miklu af því á að ráðstafa á Austurlandi í stóráformunum þar eða einum 7 teravattstundum, ef ég man rétt. Það minnir okkur á hversu takmarkaður þessi orkuforði er og algerlega fráleitt að tala um þetta sem eitthvað sem skipti máli og vegi í hinu hnattræna samhengi orkubúskapar heimsins. Orkumöguleikarnir hér eru svo takmarkaðir að þeir eru eins og í einni meðalstórborg erlendis. Við eigum því fyrst og fremst að ræða þetta út frá okkar siðferðislegu gildum en ekki því að við séum að tala um eitthvað sem breytir í stórum stíl orkujafnvægi eða orkubúskap heimsins. Það er ekki svo.
Auðvitað er það áhyggjuefni ef álframleiðsla verður mjög vaxandi á komandi árum og að stórum hluta til framleidd með kolum og olíu en þá skiptir einmitt máli að reynt sé að koma böndum á þetta m.a. eins og ætlunin er að gera með þökunum í Kyoto-bókuninni. Það er einmitt hugsunin og ekki bara þegar ál á í hlut. Mikill misskilningur er að það eina sem skipti máli í sambandi við hina hnattrænu losun gróðurhúsalofttegunda sé ál. Það er minnstur hlutinn af þessu. Það er hin almenna orkunotkun, það er umferðin o.s.frv. Ýmiss konar annar iðnaður sem þrátt fyrir allt er enn þá meira mengandi en ál, það eru til verri hlutir en það, mikil ósköp. Hér var nefnd magnesíumverksmiðja, og ef ég man rétt átti hún heldur betur að menga, þannig að auðvitað er það hið stóra almenna samhengi þessara hluta sem skiptir máli.