Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér þykja hv. þm. stjórnarandstöðunnar barma sér ansi mikið í þessari umræðu og kemur það enn betur í ljós eftir því sem líður á kvöldið.
Ég hef ákveðnar efasemdir um það þegar stjórnvöld eru að berjast fyrir ákveðnum hagsmunum á erlendri grundu að það sé ásættanlegt að stjórnarandstæðingar séu með ýmsum bellibrögðum á sömu fundum og sömu ráðstefnum að reyna að koma í veg fyrir að stjórnvöld nái því fram sem er þó lýðræðisleg niðurstaða í viðkomandi þjóðríki. Ég ætla ekkert að fara frekar út í þau vinnubrögð sem ég tel að þarna hafi verið ástunduð að einhverju leyti. En ég hef ákveðnar efasemdir um að svona vinnubrögð séu vel ásættanleg.
Og ég tel að eitt sé það að ná fram þessu íslenska ákvæði sem við höfum nú gert, síðan sé annað mál hvernig við nýtum ákvæðið. Ég held að hv. þm. stjórnarandstöðunnar geti ekki haldið því fram að það sé verra fyrir Ísland að eiga þá möguleika sem íslenska ákvæðið kveður á um heldur en eiga þá ekki. Ég held að það hljóti að vera hægt að fullyrða að það sé Íslandi í hag að eiga þessa heimild til losunar á gróðurhúsalofttegundum.