Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég var að reyna að útskýra það hérna áðan að eins og Evrópusambandið hefur hugsað sér að hafa kvótamarkaðinn, sem er ekki búið að ganga frá, er ljóst að ef íslenska ákvæðið hefði ekki verið samþykkt væri Ísland eina landið á EES-svæðinu sem þyrfti að kaupa umfangsmikinn kvóta ef hér ætti að koma álver en ekki innan Evrópusambandsins. Einhvers virði hlýtur það að vera. (SJS: Já, ef.) En varðandi það ... Já, ef. Það er ekki búið að ganga frá þessum kvótamarkaði. Og það er alveg ljóst að hlutfallslegur ávinningur --- þetta hefur allt gengið út á hlutföll --- það er óréttmætt að koma málum þannig fyrir að við hefðum verið útilokuð frá því að nota okkar orkugjafa.
Ég tel að það sé mjög rangt sem hv. þm. sagði hér um að það að við undirrituðum ekki samninginn hafi verið einhver hótun. Það var ekki hótun. Það var hins vegar til að sýna hvað þetta ákvæði var okkur mikilvægt og hve mikilvæg sérstaðan væri. Það er alveg ljóst að menn þurfa ekki að taka Ísland inn út af einhverjum heildarsamningi, við losum 0,016%.