Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Þriðjudaginn 20. nóvember 2001, kl. 15:49:53 (1802)

2001-11-20 15:49:53# 127. lþ. 32.5 fundur 289. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (hækkun gjalds) frv. 130/2001, sjútvrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 127. lþ.

[15:49]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Gjöldin eru tvenns konar og eru lögð á eigendur fiskiskipa. Annars vegar er um að ræða gjald sem lagt er á um hver áramót og miðast við stærð skips í brúttótonnum. Hins vegar er um að ræða gjald sem lagt er á við úthlutun aflaheimilda. Fram að framangreindri lagabreytingu hafði fjárhæðum verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til:

1. Að gjald á hvert brúttótonn fiskiskips verði hækkað úr 922 kr. í 1.018 kr. og að hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn hvers skips hækki úr 350.000 kr. í 387.000 kr. Árið 2000 námu tekjur Þróunarsjóðs af þessu gjaldi um 92 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldinu hækki um 10 millj. kr. og verði um 102 millj. kr. árið 2002.

2. Að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.230 kr. í 1.358 kr. Árið 2000 námu tekjur Þróunarsjóðs af gjaldi á aflaheimildir um 538 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum ásamt því að úthlutun þorskígilda verði söm og á yfirstandandi fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar lækki um 19 millj. kr. frá árinu 2000 og verði um 519 millj. kr. árið 2002. Lækkunin stafar af fækkun úthlutaðra þorskígilda úr um 460.000 fiskveiðiárið 1999/2000 í um 382.400 þorskígildi fiskveiðiárið 2001/2002.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni 1. umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn.