Umgengni um nytjastofna sjávar

Þriðjudaginn 20. nóvember 2001, kl. 17:59:36 (1837)

2001-11-20 17:59:36# 127. lþ. 32.6 fundur 286. mál: #A umgengni um nytjastofna sjávar# (brottkast afla) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 127. lþ.

[17:59]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég var ekki endilega að segja að þetta væri flókið í útfærslu. Ég hef svo sem ekki pælt þannig í því. Ég er einfaldlega að nefna það sem mér fannst augljóst í þessu samhengi, að þessi hugsun mundi strax stranda á títtnefndum dómi frá því í desember 1998. Hvort það var síðan rangur misskilningur, ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara svona fullyrðingu. Kannski er best að ég sofi svolítið á því.