Tómas Ingi Olrich:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir lofsamleg orð sem hann hafði um þessa skýrslu. Það er hins vegar ljóst að menn hafa sett upp nokkuð sérkennileg gleraugu til að lesa hana. Það vill nefnilega svo til að það er ekki fjallað um neinn sérstakan landshluta í þessari skýrslu nema um höfuðborgarsvæðið. Það er heill kafli um höfuðborgarsvæðið, og hvers vegna er það? Vegna þess að það er búið að gera sérstaka tilraun í menningartengdri ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og af þeirri tilraun má draga ýmsar athyglisverðar ályktanir. Þess vegna er það eini landshlutinn í allri skýrslunni sem fær sérstaka umfjöllun.
Svo legg ég líka til að menn lesi skýrsluna (EMS: Ég gerði það.) því að þá kemur ljós að minnst er á Fjörukrána og það er minnst á Bláa lónið með sérstakri skírskotun til skýrslu um heilsutengda ferðaþjónustu. Og hvers vegna er minnst á Bláa lónið? Það er ekki til að upphefja Suðurnes eða gera Suðurnesjum tæmandi skil heldur til þess að benda á að þar hefur verið vel að málum staðið og víða í skýrslunni er mælt með þeim aðferðum sem notaðar voru við Bláa lónið.