Frsm. meiri hluta fjárln. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir framsögu hans hér og sömuleiðis fyrir vinnu hans í nefndinni að frv. og væntanlegum lögum um fjáraukalagafrv.
Ég tek undir með hv. þm. að því leyti að við þurfum stöðugt að vera á verðbergi um framkvæmd fjárlaga og að fjáraukalögin séu nýtt eins sparlega og hægt er. Ég tel hins vegar að þeir liðir sem settir eru fram í frv. og í tillögum meiri hlutans þoli vel skoðun og þá framsetningu sem ég gerði hér grein fyrir fyrr í dag.
Það er öllum ljóst að þingið getur ekki komið að viðbrögðum og ákvörðunum um ófyrirséð útgjöld. Ég nefni eins og ég rakti í ræðu minni viðbrögð sem urðu að vera ekki aðeins með einhverra daga fyrirvara, heldur var þar um að ræða viðbrögð sem snerust um klukkutíma þegar hin mikla vá steðjaði að okkur vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum.
Fleira taldi ég líka í framsögu minni sem mér þykir sýna að engin leið var að bíða eftir ákvörðun þingsins um, heldur varð ríkisstjórnin að bregðast við því og þingið styður að sjálfsögðu slík góð verk hjá ríkisstjórninni. Og ég tel að hér hafi ekki verið farið út fyrir þau mörk sem eðlilegt má teljast um gerð fjáraukalaga.