Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti vill taka fram í ljósi athugasemda hv. þm. að enginn hæstv. ráðherra er með fjarvistarleyfi í dag. Forseti skilur því hv. þm. á þann veg að hann sé að óska viðveru ráðherranna almennt og mun því láta fara fram allsherjarútkall í þeim efnum. Forseti tekur undir með hv. þm. að ekki er óeðlilegt þegar um jafnviðamikla og veigamikla umræðu og hér um ræðir að hæstv. ráðherrar séu viðstaddir sé þess sérstaklega óskað. Tveir hæstv. ráðherrar eru í húsi, hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh., en forseti mun gera ráðstafanir til þess að gera öðrum hæstv. ráðherrum ríkisstjórnarinnar viðvart um þá ósk sem fram er komin.