Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir að leiðrétta mig. Þegar þingmenn flytja ræður geta þeir gjarnan mismælt sig og það kemur fyrir mig eins og suma aðra eins og gengur. Hafi ég farið rangt með, þá biðst ég afsökunar á því.
Hv. þm., sem er virtur skólamaður, dugmikill skólastjóri, spyr um skólagjöld. (Gripið fram í: Fyrrverandi.) Fyrrverandi, já. Um þetta hefur verið mikil umræða t.d. í mínum flokki og sumir hafa verið að rugla dálítið saman skólagjöldum og innritunargjöldum en það er tvennt ólíkt, skólagjöld og innritunargjöld. Gerð hefur verið athugun á þessu og menn í mínum flokki telja að eðlilegt sé að tala einungis um innritunargjöld en ekki skólagjöld. Við erum alveg með það á hreinu. Hins vegar eru skólagjöld í sumum háskólum landsins. Ég nefni t.d. Viðskiptaháskólann á Bifröst, Háskólann í Reykjavík og fleiri skóla. Þeir skólar eru auðvitað ríkisstyrktir. Það má ekki gleyma því að oft er verið að tala um einkaskóla með stórum stöfum en þessir skólar eru ríkisstyrktir. Engu að síður eru borguð heilmikil skólagjöld í þeim skólum og það er ekkert rangminni hjá hv. þm. Við höfum rætt þetta mjög innan okkar raða og við höfum mjög einarða stefnu að þessu leytinu til, að menn rugli ekki saman annars vegar skólagjöldum og hins vegar innritunargjöldum.