Fjárlög 2002

Þriðjudaginn 27. nóvember 2001, kl. 18:36:05 (2009)

2001-11-27 18:36:05# 127. lþ. 36.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2002# frv. 158/2001, ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 127. lþ.

[18:36]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg ljóst eins og ég sagði áðan að þingflokkur Framsfl. vill ekki rugla saman skólagjöldum og innritunargjöldum og við munum beita okkur fyrir því að innritunargjöldin í háskólanum verði 30 þús. kr. eins og við erum að tala um. Svar mitt er þess vegna já.