Gagnkvæmt samstarf við önnur ríki um fjármálastarfsemi

Miðvikudaginn 28. nóvember 2001, kl. 14:59:18 (2133)

2001-11-28 14:59:18# 127. lþ. 38.6 fundur 299. mál: #A gagnkvæmt samstarf við önnur ríki um fjármálastarfsemi# fsp. (til munnl.) frá viðskrh., viðskrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 127. lþ.

[14:59]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég held að við séum alveg sammála í þessu máli, ég og hv. fyrirspyrjandi, þannig að í sjálfu sér þarf ég ekki að gera annað en þakka hv. þm. fyrir að bera fram þessa fyrirspurn. Ég held að hún hafi verið gagnleg.

Ég vonast eindregið til að þetta gangi eins og ég sagði í lok máls míns áðan, að fyrir áramótin hafi verið gengið frá þessu þannig að íslensk fjármálafyrirtæki megi treysta því.