Jón Bjarnason:
Herra forseti. Mér kemur þessi umræða á óvart. Mér datt ekki í hug að svona viðkvæmar persónulegar upplýsingar væru faldar til vörslu hjá einkafyrirtæki. Ég hefði talið að svona viðkvæmar upplýsingar eins og þarna er um að ræða og eru á ábyrgð hins opinbera ættu að vera í vörslu þess samkvæmt þá skýrum reglum um hvernig með skuli fara en þetta gangi ekki svona á milli einstaklinga.
Mér finnst heldur ekki koma skýrt fram hvernig tryggt sé að upplýsingarnar fari þá aftur út eða séu réttar sem inni eru. Mér, herra forseti, finnst þetta vera grafalvarlegt mál sem hér er verið að hreyfa og treysti því að hæstv. dómsmrh. skoði hvort þarna sé með besta hætti farið.