Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Aðeins út af þeim orðum hv. þm. að norskir þingmenn, a.m.k. sumir hverjir, teldu ekki ráðlegt að taka upp þau vandamál og vandkvæði sem við stöndum frammi fyrir. Það er rétt en ég er einfaldlega ekki sammála því. Ég tel alltaf nauðsynlegt að taka upp þau vandkvæði og vandamál sem menn standa frammi fyrir. Ef menn óttast að það geti leitt til þess að staðan verði alltaf miklu verri verður það væntanlega til þess að menn verða aldrei tilbúnir til þess að tala um nokkurt einasta vandamál. Og ég er ósammála þeirri hugsun. Hins vegar er það rétt að þessa hefur gætt í Noregi.
Það má vel vera að Evrópusambandið muni taka upp einhverjar kröfur á okkur. Og það er vitað að þeir munu gera það. Það er vitað að þeir munu krefjast þess að við borgum meira inn í sameiginlega sjóði til styrktar fátækari löndum.
En aðeins vegna þess sem hv. þm. sagði um að stjórnarflokkarnir báðir væru ekki að ræða mál sem vörðuðu evruna. Það er rangt. Hún vitnaði hér í prýðilega ræðu Baldurs Guðlaugssonar, ráðuneytisstjóra í fjmrn. Og ætli það sé ekki alveg ljóst að ráðuneytisstjórinn í fjmrn. heldur ekki slíka ræðu nema með samþykki síns fjmrh. Ég lít því svo á að þessi ræða, sem er mjög merkileg, sé að sjálfsögðu flutt í fullu samráði við fjmrh. Það liggur alveg fyrir í hverju einasta ráðuneyti að ráðuneytisstjóri heldur aldrei slíka ræðu nema í samráði við sinn ráðherra.