Samningur heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis um málefni fatlaðra

Mánudaginn 03. desember 2001, kl. 15:40:47 (2293)

2001-12-03 15:40:47# 127. lþ. 41.1 fundur 180#B samningur heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis um málefni fatlaðra# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 127. lþ.

[15:40]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég get nú ekki nefnt stað eða stund en það er rétt að við erum að vinna að því að tryggja þessa fjármuni. Ég vona að það takist og dragist ekki úr hömlu að undirrita þennan samning. Ég endurtek að ég vil að þetta mál sé tryggt.

Ég endurtek líka að ég hefði gjarnan viljað vera búinn að undirrita samninginn en ég vil tryggja framkvæmd hans og geta undirritað hann uppréttur að því leyti. Ég vona að það takist á næstu dögum. Ég get ekki nefnt stað eða stund en auðvitað tengist þetta mál fjárlagaafgreiðslunni.