Samningur heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis um málefni fatlaðra

Mánudaginn 03. desember 2001, kl. 15:41:49 (2294)

2001-12-03 15:41:49# 127. lþ. 41.1 fundur 180#B samningur heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis um málefni fatlaðra# (óundirbúin fsp.), ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 127. lþ.

[15:41]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Ég heyri að hæstv. ráðherra er allur af vilja gerður. Hann sagðist vona að það tækist að fá fjárveitingu til að klára þennan samning. Ég treysti hæstv. ráðherra til að klára þetta mál og að hann tryggi fjármuni til að leysa þennan vanda. Ég veit að hann mun gera það.

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og vænti þess að gengið verði frá þessum samningi á næstu dögum.