Reikningsskil sveitarfélaga

Mánudaginn 03. desember 2001, kl. 15:50:13 (2301)

2001-12-03 15:50:13# 127. lþ. 41.1 fundur 182#B reikningsskil sveitarfélaga# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 127. lþ.

[15:50]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Rökstuðningur sá sem þetta álit byggist á var á þeim blöðum sem hv. þm. var með í höndunum og þurfti ekkert að tyggja það meira ofan í hann.

Ég vil líka taka fram að það er mikil fásinna að halda að erindi eða klögumál á hendur meiri hluta sveitarstjórna þar sem framsóknarmenn og sjálfstæðismenn eru í meiri hluta séu eitthvað öðruvísi meðhöndlaðar en kærur þar sem öðruvísi er pólitískt skipað meiri hluta í sveitarfélögum.