Skýrsla umboðsmanns Alþingis 2000

Mánudaginn 03. desember 2001, kl. 18:45:19 (2343)

2001-12-03 18:45:19# 127. lþ. 41.5 fundur 178#B skýrsla umboðsmanns Alþingis 2000# (munnl. skýrsla), ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 127. lþ.

[18:45]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. forseti Alþingis kom hér í ræðustól og sagði okkur að hann væri hafður fyrir rangri sök, að við værum að bera hann röngum sökum og værum með stóryrði í því sambandi. Nú hleypur hann undan sjálfum sér og vill hvorki kannast við eigin afstöðu nú né fyrr í dag. Þetta er ömurlega staða sem forseti þingsins er kominn í.