Umræðuefni í athugasemdum um störf þingsins

Þriðjudaginn 04. desember 2001, kl. 14:00:39 (2380)

2001-12-04 14:00:39# 127. lþ. 42.93 fundur 194#B umræðuefni í athugasemdum um störf þingsins# (um fundarstjórn), Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 127. lþ.

[14:00]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Vegna þeirra umræðna sem hér hafa orðið vill forseti taka fram að þetta hefur verið rætt ítarlega í forsn. og niðurstaða nefndarinnar er sú að leyfa umræður svipaðar og hér fóru fram í upphafi fundar undir liðnum störf þingsins. En það er sjálfsagt að bera boð hv. 2. þm. Vesturl. til forsn. og ræða þetta að nýju.