Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég lít ekki á það sem sérstakt áreiti þó að til manns sé beint spurningum um þingmál sem maður flytur hér. Það er sjálfsagt að veita upplýsingar sem geta skýrt málið. Ég hef gert það og er búinn að gefa skýringar á því hvernig þetta mál er í pottinn búið, hvernig þessu andvirði er varið og hver niðurstaðan er af samkomulagi okkar landbrh. um þetta mál. Síðan geta menn bara gert það upp við sig, hver fyrir sig, hvort þeir eru ánægðir með þá niðurstöðu eða ekki, hvort þeir telja að hún sé fullnægjandi eða ófullnægjandi, viðunandi eða óviðunandi. Þetta er niðurstaðan af samkomulagi okkar og ég tel að hún sé í eðlilegu samræmi við gjafabréfið sem um er að ræða.
Auðvitað er ljóst að hér er um að ræða miklu meiri verðmæti en áður var talið og það gefst tækifæri til að leysa hér vanda, bæði Skógræktar ríkisins og Garðyrkjuskólans, sem ég tel eðlilegt í þessu sambandi með hliðsjón af því sem ég gat um hér áðan. Það gefst líka tækifæri vegna annars máls, sem einnig kemur fram í brtt., að leysa vanda tveggja annarra stofnana á vegum landbrn., þ.e. skólanna á Hvanneyri og á Hólum. Það er vegna annarra fjármálaráðstafana sem við landbrh. höfum orðið sammála um. Ég held að menn ættu bara að vera ánægðir með þetta og gera ekki veður út af einhverjum smámunum í þessu máli eins og mér heyrist tilhneiging til.