Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Þess er getið í löggjöf að gera skuli rýmingaráætlanir sem gilda þegar hætta steðjar að, t.d. vegna náttúruhamfara. Um það voru á sínum tíma skiptar skoðanir, þegar viðkomandi lög voru sett, hvort slíkar rýmingar\-áætlanir væru gerðar af heimamönnum sem best þekktu til á hverjum stað eða hvort opinber nefnd, skipuð fulltrúum þeirra sem að almannavörnum koma, ætti að gera þær áætlanir, sem síðan varð ofan á að því er mig minnir.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að það er nauðsynlegt að gera rýmingaráætlanir fyrir opinberar stofnanir, sérstaklega þar sem daglega er fjöldi saman kominn, t.d. í skólum og leikskólum, en ekki síður fyrir heilbrigðisstofnanir og fyrir dvalarheimili fyrir aldraða, þar sem oftar en ekki er um að ræða rúmliggjandi einstaklinga sem þurfa á verulegri aðstoð að halda ef yfirgefa þarf húsnæði. Ef hætta steðjar að, t.d. af náttúruhamförum eða eldsvoða, verða viðbrögðin við að rýma slíkar stofnanir að vera rétt svo það gangi fyrir sig eins fljótt og auðið er.
Það er auðvitað mjög alvarlegt þegar opinberar eftirlitsstofnanir, eins og Heilbrigðiseftirlit, Vinnueftirlit og Brunamálastofnun, gera verulegar athugasemdir við húsakynni heilbrigðisstofnana og möguleika til að rýma þær ef hætta steðjar, að eins og gert var varðandi öldrunar- og hjúkrunardeildina Ljósheima á Selfossi fyrir nokkrum árum.
Mér er ekki kunnugt um, virðulegi forseti, að þeim umbótum sem þar var farið fram á að yrðu gerðar, m.a. til að auka möguleika á að rýma húsnæðið ef hætta steðjaði að, hafi verið hrint í framkvæmd. Þess vegna skiptir verulega miklu máli að fyrir liggi afstaða hæstv. ráðherra um hvernig eigi að standa að því ef vá ber að höndum í stofnun eins og Ljósheimum á Selfossi, þar sem húsnæði er verulega ábótavant og það jafnvel talið hættulegt. Verði þar til að mynda eldsvoði þá þarf að vera til virk rýmingaráætlun. Þess vegna leyfi ég mér að bera fram eftirfarandi fyrirspurn til hæstv. ráðherra:
1. Eru fyrirliggjandi rýmingaráætlanir fyrir allar heilbrigðisstofnanir í landinu ef hætta steðjar að, t.d. náttúruhamfarir eða eldsvoði, og ef svo er, hvenær voru þær gerðar og fyrir hvaða stofnanir?
2. Hvenær voru síðast gerðar rýmingaráætlanir fyrir heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi?
3. Var við gerð þeirra tekið tillit til þeirra alvarlegu ábendinga sem fram hafa komið frá eftirlitsaðilum varðandi öldrunar- og hjúkrunardeildina Ljósheima á Selfossi? Ef svo er, hvað var gert til þess að bregðast við þessum ábendingum?