Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir samstarfið við meðferð þessa máls í efh.- og viðskn. og þá vinnu sem þingmaðurinn hefur lagt í nál.
Ég vil hins vegar spyrja í ljósi orða hv. þm. um áhrif 0,77% hækkunar tryggingagjalds á atvinnuleysi og uppsagnir fyrirtækja, hvort hv. þm., Samfylkingin eða einhver á vegum þingmannsins hefur gert úttekt á áhrifum launakostnaðarhækkana vegna umsaminna launahækkana nú um áramótin hjá fyrirtækjum, sem eru 3%, og síðan umsaminna launahækkana í ársbyrjun 2003 og annarra þeirra launahækkana sem hugsanlega gætu (Gripið fram í.) komið, hvort hv. þm. hafi einhverjar hugmyndir um áhrif launakostnaðarhækkana af þeim völdum á atvinnuleysi og uppsagnir, vegna þess að hv. þm. var búinn að gera úttekt á áhrifum launakostnaðarhækkana vegna 0,77% hækkunar á tryggingagjaldi.
Annað sem ég fékk ekki almennilega skýringu á var að það á að taka upp mismunandi eignarskatta á eigið fé í fyrirtækjum eftir því hvort nafnverð hlutafjár er hærra eða lægra. Eins og hv. þm. veit þá skiptist eigið fé fyrirtækja í nafnverð hlutafjár og síðan annað eigið fé. Mér skildist á hv. þm. að tillaga Samfylkingarinnar væri upp á að það væri 0,9% eignarskattur á eigið fé sem er inni í fyrirtækinu en 0,6% eignarskattur á nafnverð hlutafjár sem er í eigu einstaklinganna eða eigendanna. Ég vil spyrja um rökin fyrir því að mismuna fyrirtækjum svo miðað við það hvort nafnverð hlutafjár er hærra eða lægra.