Ísólfur Gylfi Pálmason (um fundarstjórn):
Herra forseti. Út af þessum orðum hv. þm. --- ég hef séð ráðherra í þessum sal, m.a. stendur hæstv. fjmrh. hér í dyrunum og hæstv. samgrh. hefur verið hér. Hæstv. heilbr.- og trmrh. hefur verið hér í húsi en vegna tækninnar hér í þinginu geta menn fylgst með umræðu.
Það skal tekið fram, og er aldrei of oft tekið fram, að þó að það séu að vísu ekki mjög margir þingmenn hér í augnablikinu fylgjast þeir mjög gjarnan með umræðum á skrifstofum sínum. Við eigum að nýta okkur þessa tækni því að það er mjög margt hægt að gera meðan menn eru á skrifstofum. Mér finnst í raun og veru óþarfi að vekja athygli á þessu og fáránlegt að segja að þeir hafi ekki verið hérna þar sem ég hef a.m.k. orðið var við þessa þrjá hæstv. ráðherra, og hæstv. fjmrh. sem ber ábyrgð á fjárlögunum stendur hér í dyrunum.