Fjárlög 2002

Föstudaginn 07. desember 2001, kl. 18:08:23 (2736)

2001-12-07 18:08:23# 127. lþ. 46.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2002# frv. 158/2001, GÁS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 127. lþ.

[18:08]

Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég get ekki annað en þakkað hv. þm. af mikilli auðmýkt þær frábæru undirtektir sem hann sýndi málflutningi mínum og félaga minna í Samfylkingunni. Ég hygg að við séum sammála um að vona hið besta um framtíð þessa lands og þróun mála á næsta ári, en erum viðbúnir því versta.