Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Laugardaginn 08. desember 2001, kl. 14:32:32 (2821)

2001-12-08 14:32:32# 127. lþ. 47.2 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 127. lþ.

[14:32]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Hér er verið að afnema skattlagningu á húsaleigubætur og er þá orðin að veruleika margra ára barátta Leigjendasamtakanna, verkalýðshreyfingarinnar og annarra almannasamtaka sem lagst hafa á eitt um að hnekkja því ranglæti að leigjendur búi við annan og mun verri kost en þeir sem eiga sínar íbúðir og hús.

Ég fagna þessari skattbreytingu. Hún er í samræmi við stefnu Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs.