Kristján L. Möller:
Herra forseti. Hér eru greidd atkvæði um nýjasta afrek ríkisstjórnarflokkanna sem er hækkun tryggingagjalds. Hér er verið að búa til enn einn landsbyggðarskattinn. Þessi aðgerð staðfestir betur en allt annað að það er engin innstæða á bak við tal stjórnarsinna um að nauðsynlegt sé að rétta hlut landsbyggðarinnar.
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu munu hagnast um 2,7 milljarða kr. á þessari breytingu. Fyrirtæki á landsbyggðinni munu hins vegar aðeins hagnast um 74 millj. kr. Með þessari skattahækkun eru rekstrar- og samkeppnisskilyrði fyrirtækja á landsbyggðinni stórlega skert. Er ekki komið nóg, herra forseti, í álögum og árásum á fyrirtækjarekstur á landsbyggðinni?
Jöfnun lífskjara, svo og jöfnun rekstrarskilyrða fyrirtækja án tillits til staðsetningar þeirra verður að vera meðal forgangsverkefna ef árangur á að nást í byggðamálum. Núverandi hæstv. ríkisstjórn er ekki að vinna að slíkum jöfnunaraðgerðum.
Herra forseti. Ég segi þvert nei við þessari skattatillögu ríkisstjórnarinnar.