Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Með því að hækka tryggingagjaldið til að fjármagna tekjuskattslækkun fyrirtækja er verið að hygla fáum stórum og öflugum fyrirtækjum, fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er á kostnað almenns atvinnurekstrar og sveitarfélaga alveg sérstaklega á þeim svæðum landsins sem hafa átt í vök að verjast. Þetta lýsir sér best í því að þrjú skattaumdæmi á suðvesturhorninu hirða meira en allan hagnaðinn af tekjuskattslækkuninni. Þetta eru yfirgengileg skilaboð frá stjórnvöldum sem á hátíðarstundum berja sér á brjóst og tala um það að þau vinni gegn byggðaröskun. Þetta eru skilaboð til landsbyggðafólks. Fyrirtæki í Reykjavík og nágrenni fá 2,8 milljarða í skattalækkun, landsbyggðarfólkið minna en ekki neitt. Hvert skyldu menn svo flytja út á þessa breytingu, hæstv. forseti?