Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Við lokaafgreiðslu fjárlaga munu þingmenn Frjálslynda flokksins taka afstöðu til einstakra tillagna. Afstaða okkar mun birtast í atkvæðagreiðslunni. Við munum hins vegar sitja hjá við lokaafgreiðslu málsins.