Fjárlög 2002

Laugardaginn 08. desember 2001, kl. 16:22:19 (2878)

2001-12-08 16:22:19# 127. lþ. 47.3 fundur 1. mál: #A fjárlög 2002# frv. 158/2001, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 127. lþ.

[16:22]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs styður þetta aukna framlag til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins en við teljum þessa aukningu engan veginn nægja. Við höfum kynnt okkur málefni Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar, sem sinnir mjög mikilvægu þjónustuhlutverki fyrir fötluð börn og aðstandendur fatlaðra barna, og það sætir furðu hvers vegna þeirri stofnun hefur verið haldið í því fjársvelti sem raun ber vitni.