Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Hér finnur ríkisstjórnin breiðu bökin. Hækka á gjöld á sjúklinga um 200--300%, þeirra sem þurfa á sérfræðiþjónustu að halda. Það er tekið af 6.000 kr. þak á greiðslum og síðan hækka ferliverk um allt að tugi þúsunda fyrir hvert verk á sjúklinga. Einnig er í þessum lið verið að auka þátttöku sjúklinga í lyfjakostnaði og hér er verið að greiða 200 millj. til viðbótar fyrir lyfin.
Við mótmælum þessum álögum á sjúklinga. Við viljum verja velferðarkerfið andstætt við ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sem veitist að velferðarþjónustunni. Ég segi nei.