Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Nú kemur til lokaafgreiðslu þriðja fjárlagafrv. stjórnarflokkanna á þessu kjörtímabili. Ég vil vekja athygli á því að framlög til velferðar- og fræðslumála hafa aukist um 30 milljarða kr. á aðeins þremur árum. Framlög til heilbrigðismála hafa aukist um ríflega 20%. Framlög til fræðslumála hafa aukist um ríflega 30% og framlög til almannatrygginga og velferðarmála hafa aukist um 40%. Útgjöld til heilbr.- og trmrn. eins aukast á næsta ári um 9,3 milljarða frá gildandi fjárlögum.
Meðal nýrra fjárveitinga nú eru 500 millj. kr. til að auka barnabætur, sem eru annar áfangi af þremur til að auka þær um 2 milljarða kr. alls, 800 millj. kr. til að auka rétt feðra til fæðingarorlofs og 1.600 millj. kr. til að aukinna greiðslna til öryrkja og aldraðra samkvæmt sérstakri lagasetningu fyrr á þessu ári.
Þá vil ég geta þess að til skógræktarverkefna verður varið 280 millj. kr. á næsta ári og hafa framlög til þeirra verkefna þrefaldast frá árinu 1999. (Forseti hringir.) Í heild ber frv. vott um skýrar pólitískar áherslur þar sem auknum tekjum ríkissjóðs er einkum varið til velferðarmála.