Einar Már Sigurðarson (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvitað ekki vonum seinna sem við ræðum þá skýrslu sem lögð var fram rétt fyrir þinglok í vor en það er einnig hægt að benda á að ýmislegt annað veldur því að heldur er seint um þetta rætt, ég tala ekki um þegar boðað er að á næstu vikum verði lögð fram ný áætlun, vegna þess að það eru aðeins þrír sólarhringar síðan við samþykktum fjárlög fyrir næsta ár. Það er nauðsynlegt, herra forseti, að vekja athygli á því að í fjárlagafrv. sem var lagt fram í byrjun október segir orðrétt, með leyfi forseta:
,,Framangreind framlög miðast við núverandi byggðaáætlun en unnið er að nýrri byggðaáætlun fyrir árin 2002--2003, sem lögð verður fyrir Alþingi á haustþingi komanda.``
Herra forseti. Í mínum huga er þessu ágæta haustþingi senn lokið. Nú segir hæstv. ráðherra að vonandi verði hægt að leggja fyrir þingið hina nýju byggðaáætlun á næstu vikum. Það er hins vegar ljóst að ,,á næstu vikum`` er a.m.k. rúmur mánuður frá þeim degi sem nú er því þing mun ekki hefjast aftur að lokinni þessari viku fyrr en í lok janúar. Það er auðvitað nauðsynlegt að hæstv. ráðherra reyni að gefa okkur gleggri upplýsingar um hvenær við megum vænta hinnar nýju byggðaáætlunar og að við fáum gleggri skýringar á því hvað hefur dregið þá vinnu og hví henni var ekki lokið eins og áætlað var.
Herra forseti. Enn ein bein tilvitnun í fjárlagafrv. því þar segir, með leyfi forseta:
,,Gert er ráð fyrir að framlög breytist miðað við breyttar áherslur áætlunarinnar.``
Spurning mín, herra forseti, til hæstv. iðnrh. er nú þessi: Hvernig ætlar hæstv. iðnrh. að tryggja fjármagn til framkvæmdar hinnar nýju áætlunar þar sem mistekist hefur að koma a.m.k. þeim upphæðum inn í fjárlögin sem samþykkt voru sl. laugardag?