Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir þetta svar. Hann segist vera rólegur vegna þess að eftir eigi að semja um þær bætur sem sveitarfélögin verði að fá vegna breytinga á tryggingagjaldi. Ekki þarf eingöngu að semja um að sveitarfélögin þurfi að borga miklu meira vegna hækkunar tryggingagjalds heldur verður einnig hjá þeim tekjutap vegna húsaleigubóta, tekjutap vegna hugsalegrar breytinga úr einkarekstri yfir í einkahlutafélög o.s.frv.
Þá er spurning mín til hv. þm., vegna þess að hann er svo rólegur yfir því að hægt verði að semja um þetta á næsta ári, þ.e. verði þá ekki bara búið að semja tryggingagjaldið algjörlega út af borðinu: Var það skilyrði fyrir samþykki hv. þm. að fullar bætur kæmu til sveitarfélaganna út af því tekjutapi sem verður óneitanlega hjá sveitarfélögunum vegna þessara breytinga á tryggingagjaldinu? Voru það skilyrði hans? Ef þetta verður ekki bætt fullkomlega, ef sveitarfélögin ná ekki samningi við hæstv. fjmrh. um fullkomnar bætur út af þessu, er þá þingmaðurinn tilbúinn að breyta þessum lögum sveitarfélögunum aftur í hag?