Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Þriðjudaginn 11. desember 2001, kl. 19:19:24 (2991)

2001-12-11 19:19:24# 127. lþ. 49.1 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, GunnB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 127. lþ.

[19:19]

Gunnar Birgisson (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða þetta málefnalega, hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Ég vil bara að lokum þakka mönnum fyrir að hafa tekið þátt í þessari umræðu, og ég trúi því og staðhæfi að um verulegan bata í íslensku efnahagslífi verði að ræða með tilkomu þessa frv. Það væri gaman að tala saman um þetta mál eftir einhver ár og sjá þá stöðuna og hvaða skoðanir þessir sömu hv. þm. segja þá sem hafa talað mest á móti þessu.