Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 13:14:45 (3062)

2001-12-12 13:14:45# 127. lþ. 50.1 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[13:14]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Hér er verið að samþykkja lagabálk sem hefur miklar breytingar í för með sér á sköttum og öðru umhverfi atvinnulífsins. Þessar lagabreytingar munu vekja bjartsýni hjá almenningi og fyrirtækjum og það mun hvetja allan almenning til dáða. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir þá yfirlýsingu hæstv. fjmrh. að hér verði ekki staðar numið heldur haldið áfram á þessari braut. Ég segi já.