Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 13:15:25 (3063)

2001-12-12 13:15:25# 127. lþ. 50.1 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, viðskrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[13:15]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég vil lýsa ánægju með að þessar breytingar á skattalöggjöfinni skuli nú vera í höfn sem bætir mjög rekstrarumhverfi fyrirtækjanna í landinu og bætir samkeppnisstöðu Íslands sem skiptir mjög miklu máli í hinu nýja alþjóðlega umhverfi sem þau nú starfa í.