Frsm. 1. minni hluta sjútvn. (Jóhann Ársælsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Skoðun mín er reyndar sú að allt málið sé vanbúið. Ef það á að heita sátt sem leitað er að í þessu máli þá getur hún aldrei orðið til úr þeim niðurstöðum sem liggja fyrir frá þessari nefnd. Mönnum væri nú sæmara að reyna að leita sátta í þessu máli upp á nýtt heldur en að fara í gegnum Alþingi með málið með slíkum hætti sem í stefnir, ef nota á niðurstöðu meiri hluta svokallaðrar sáttanefndar til að byggja á hér við afgreiðslu á hv. Alþingi. Það mun ekki færa mönnum gæfu í þessu máli að ætla sér það.
Ég skora á hæstv. ráðherra að hugsa ráð sitt vel yfir jólin og áramótin og reyna að átta sig á því hvort hlutverk hans í ráðherrastóli ætti ekki að vera að leita sátta í þessu máli frekar en að efla úlfúð eins og meiri hlutinn hefur gert fram að þessu.