Frsm. 1. minni hluta sjútvn. (Jóhann Ársælsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það verða aldrei allir jafnir sagði hv. þm. Það er út af fyrir sig rétt. Hins vegar eiga allir að vera jafnir fyrir þeim ráðstöfunum sem hið opinbera gerir. Þar eiga menn að gæta jafnræðis. Það hafa menn ekki stundað á hv. Alþingi. Hér hafa menn sett upp kerfi þar sem mönnum er mismunað freklega og miklu meira en kannski dæmi eru til hvað varðar gífurlega mikil verðmæti sem eru þeir möguleikar að stunda sjó við Íslandsstrendur. Um það stendur þessi aðaldeila.
Það er vitaskuld æðimikill munur á því að stofna til nýrrar útgerðar eða atvinnureksturs í sjávarútvegi þar sem slíkt hefur horfið í burtu í dag þegar ekki er gætt jafnræðis hvað varðar endurstofnun fyrirtækja og möguleika til þess að koma að þeim atvinnurekstri. Það er hin mikla deila. Það vilja menn ekki skilja sem hafa stutt þetta kerfi og það er það sem þarf að fást niðurstaða og botn í. Annars verður aldrei sátt um stjórn fiskveiða.