Einar Már Sigurðarson (andsvar):
Herra forseti. Það er nauðsynlegt að gera hér örstuttar athugasemdir við ræðu hv. þm.
Í fyrsta lagi, þar sem hv. þm. er að ræða um skráningargjöld við háskóla, er rétt að vekja athygli á því að annars vegar er verið að ræða um lög sem sett voru 1999, lög um Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, og hins vegar lög frá 1997 um Kennaraháskóla Íslands. Það er alveg ljóst að þær eftiráskýringar sem hv. þm. viðhafði hér um að verðlag hefði hækkað sem þessu nemur og jafnvel meira eiga að sjálfsögðu ekki við vegna þess, eins og ég sagði, að annars vegar er verið að ræða um breytingar frá 1999 og það kannast enginn við að nokkur skapaður hlutur hafi náð þessum hækkunum sem hér er um að ræða þannig að þær skýringar eiga ekki við, enda var þær skýringar ekki að finna í fjárlagafrv. þegar þessar hugmyndir komu fyrst fram. Hér er auðvitað fyrst og fremst verið að ná sparnaðaráformum ríkisstjórnarinnar og það á að tala um hlutina eins og þeir eru.
Hitt vekur hins vegar atriði athygli að allt annar lagatexti snýr að þessum skrásetningargjöldum í Kennaraháskóla Íslands en í hinum háskólunum, Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Bara það að þetta nái ekki verðlagshækkunum á ekki einu sinni við varðandi Kennaraháskóla Íslands vegna þess að þar segir að þessi gjöld eigi eingöngu að taka mið af kostnaði vegna innritunar, kennsluefnis og pappírsvara.
Þó er lengri textinn sem á við um háskólana og hugsanlega væri hægt að finna eftir krókaleiðum að menn séu að ná því þar. En það er algjörlega vonlaust að gera varðandi Kennaraháskóla Íslands. Því væri alveg lágmark, ef menn hefðu ætlað sér að standa við eitthvað af því sem stendur í lagatextanum, að gera tillögu um breytingar á lögunum um Kennaraháskóla Íslands þannig að það sé þó a.m.k. samræmi á milli skólanna. En því miður, herra forseti, er þetta auðvitað dæmi um hvers konar handarbakavinnubrögð eru hér á ferðinni, að ekki er einu sinni hugað að því að hafa samræmi í hlutunum á milli skóla sem reknir eru af ríkinu.