Heilbrigðisþjónusta

Föstudaginn 14. desember 2001, kl. 10:31:14 (3304)

2001-12-14 10:31:14# 127. lþ. 55.15 fundur 229. mál: #A heilbrigðisþjónusta# (Heyrnar- og talmeinastöð) frv. 143/2001, Frsm. JBjart
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 127. lþ.

[10:31]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. hv. heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum.

Með frumvarpinu eru meginákvæði laga um Heyrnar- og talmeinastöð felld inn í lög um heilbrigðisþjónustu. Helstu efnisbreytingar sem frumvarpið hefur í för með sér eru að í stað stjórnar er gert ráð fyrir skipun fagráðs. Þá er í frumvarpinu að finna það nýmæli að ráðherra er heimilt að veita einkaaðilum rekstrarleyfi til að annast þá þjónustu eða hluta þeirrar þjónustu sem Heyrnar- og talmeinastöð er ætlað að veita samkvæmt lögunum.

Nefndin telur að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu séu til bóta. Nefndin álítur að sú breyting að skipa fagráð í stað stjórnar sé í samræmi við þau viðhorf sem nú eru uppi og sé til þess fallin að auka gæði og hagkvæmni þjónustunnar.

Nefndin fjallaði nokkuð um heimild ráðherra til að veita einkaaðilum rekstrarleyfi til að annast þjónustu eða hluta þeirrar þjónustu sem fellur undir starfssvið Heyrnar- og talmeinastöðvar. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar mun einkum vera áhugi fyrir þeim þætti starfseminnar sem lýtur að prófun heyrnar og úthlutun og sölu heyrnartækja. Engu að síður er hugsanlegt að áhugi manna til að starfa á öðrum sviðum muni aukast í framtíðinni. Nefndin telur að þetta nýmæli geti verið til þess fallið að auka og bæta heilbrigðisþjónustu á þessu sviði. Nefndin leggur vegna þessa áherslu á að gera verður kröfu um nákvæma kostnaðargreiningu af hálfu Heyrnar- og talmeinastöðvar á þeim þáttum starfseminnar sem eru á sama sviði heilbrigðisþjónustu og því sem einkaaðilar með rekstrarleyfi starfa á.

Með tilkomu einkaaðila í rekstur heilbrigðisþjónustu á þessu sviði er nauðsynlegt að greiðsluþátttaka ríkisins sé tiltekin sem ákveðin krónutala en ekki sem hlutfallsgjald. Erfitt er að hafa stjórn á útgjöldum ríkisins til málaflokksins ef greiðsluþátttaka er ákveðin sem hlutfall af kostnaði. Nefndin telur því brýnt að þessa verði gætt á þeim sviðum þar sem rekstrarleyfi verða veitt.

Nefndin vekur athygli á því að í 26. gr. laganna, sbr. 27. gr., er almenn heimild fyrir ráðherra til að veita rekstrarleyfi vegna starfsemi í lækningaskyni. Það má halda því fram að sérákvæði um starfsleyfi vegna heyrnar- og talmeinaþjónustu sé af þessum sökum óþarft. Framkvæmd þessara ákvæða hefur hins vegar verið ósamræmd og hvetur nefndin til endurskoðunar ákvæðanna með það að markmiði að samræma rekstrarleyfisveitingar innan ramma þeirra. Nefndin gerir því að svo stöddu ekki athugasemd við þá útfærslu sem lögð er til í frumvarpinu enda er um nýtt þjónustusvið að ræða sem eðlilegt er að áskilja að uppfylli tilteknar kröfur.

Nefndin vill vekja athygli á að sérstaklega þarf að huga að þjónustu við daufblinda. Samkvæmt orðalagi frumvarpsins fellur þjónusta við þá ekki innan ramma Heyrnar- og talmeinastöðvar. Daufblinda er sérstök fötlun og þarf að sjá til þess að þessi hópur njóti samsettrar þjónustu sem mæti sérstökum þörfum hans. Jafnframt þarf að gæta þess að skrá yfir daufblinda sé haldið saman eins og með aðra sem heyra undir Heyrnar- og talmeinastöðina.

Nefndin gerir ekki athugasemd við ákvæði 5. tölul. 2. efnismgr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að Heyrnar- og talmeinastöð skuli safna upplýsingum um alla skjólstæðinga sína samkvæmt frumvarpinu ásamt öðrum tölfræðilegum upplýsingum enda er gerður áskilnaður um að söfnun þessara upplýsinga skuli fara fram samkvæmt lögum um persónuvernd. Heyrnar- og talmeinastöð hefur einnig þessa skyldu samkvæmt núgildandi lögum.

Í núgildandi lögum er kveðið á um að Heyrnar- og talmeinastöð skuli annast þjónustu við málhalta en svo er ekki í frumvarpinu heldur er einungis talað um talmein. Nefndin vill taka af allan vafa um það að með þessu er ekki verið að þrengja það hlutverk sem stöðin hefur, enda segir í athugasemdum með frumvarpinu að orðið talmein hafi öðlast sess í íslensku máli og sé notað í stað málheltis nú. Með sama hætti vill nefndin taka það fram að þrátt fyrir að ekki sé kveðið sérstaklega á um það í frumvarpinu, eins og í núgildandi lögum, að Vesturhlíðarskóli og sérdeildir fyrir heyrnarskerta í almennum skólum og sérskólum skuli njóta þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar, ber alls ekki að skilja það svo að verið sé að draga úr þjónustu við nemendur þessara skóla. Enda ber Heyrnar- og talmeinastöð að sinna öllum sem eiga við heyrnar- og talmein að stríða.

Nefndin leggur til fáeinar breytingar á frumvarpinu. Lagt er til að tiltekið verði sérstaklega að það sé hlutverk Heyrnar- og talmeinastöðvar að annast uppsetningu á hjálpartækjum en ekki bara viðhald þeirra og útvegun. Þá er lagt til að þar sem talmein er nefnt í frumvarpinu verði samhliða einnig talað um heyrnarmein. Þetta er gert til að tryggja að heyrnarmein, t.d. eyrnasuð, falli ótvírætt innan starfssviðs Heyrnar- og talmeinastöðvar. Aðrar breytingar sem nefndin leggur til hafa ekki efnisbreytingu í för með sér og nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj.

Undir álit þetta rita auk frsm. hv. nefndarmenn í heilbr.- og trn., Ásta Möller, Katrín Fjeldsted, Ásta R. Jóhannesdóttir með fyrirvara, Þuríður Backman með fyrirvara og Margrét Frímannsdóttir með fyrirvara.