Náttúruvernd

Föstudaginn 14. desember 2001, kl. 11:01:53 (3314)

2001-12-14 11:01:53# 127. lþ. 55.8 fundur 159. mál: #A náttúruvernd# (Náttúruverndarráð o.fl.) frv. 140/2001, ÞSveinb (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 127. lþ.

[11:01]

Þórunn Sveinbjarnardóttir:

Hæstv. forseti. Í frv. þessu til breytinga á náttúruverndarlögum er lagt til að leggja niður Náttúruverndarráð. Fulltrúar Samfylkingarinnar í hv. umhvn. styðja þetta frv. með þeim fyrirvara að tryggt sé í nánari umfjöllun umhvn. að nægt fé verði veitt til frjálsra félagasamtaka sem láta sig umhverfisvernd varða þannig að aðhaldið við ríkisvaldið verði engu minna en í tíð Náttúruverndarráðsins sáluga.