Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það var nú ekki mikið upplit á hv. þm. Hann sýnir mér eiginlega mikla lítilsvirðingu með þessu svari. Ég hef þá trú að Alþingi Íslendinga sé löggjafarsamkunda og hún er það samkvæmt stjórnarskránni. Alþingi Íslendinga á að semja og setja lög. Þetta er því afskaplega mikil lítilsvirðing, finnst mér, bæði við mína persónu og jafnvel við stjórnarskrána.