Jólakveðjur

Föstudaginn 14. desember 2001, kl. 16:31:46 (3402)

2001-12-14 16:31:46# 127. lþ. 56.93 fundur 254#B jólakveðjur#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur, 127. lþ.

[16:31]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég þakka hv. 4. þm. Vestf. fyrir hlý orð og góðar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og hv. þingmönnum fyrir að taka undir þau orð með því að rísa úr sætum.

Ég endurtek þakkir mínar og innilegustu jóla- og nýársóskir til hv. þingmanna og alls starfsfólks Alþingis.