Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 533  —  327. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2002.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti og Hjálmar Vilhjálmsson frá Hafrannsóknastofnuninni.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á nokkrum samningum um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2002.
    Hinn 6. maí 1996 var undirrituð í Ósló bókun um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi. Aðilar eru strandríkin fjögur, Ísland, Færeyjar, Noregur og Rússland. Þau skuldbinda sig í bókuninni til að starfa saman að verndun síldarstofnsins, skynsamlegri nýtingu hans og stjórn veiða úr honum í því skyni að tryggja sjálfbæra nýtingu stofnsins til langs tíma.
    Á fundi aðila í London 5.–9. nóvember sl. náðist samkomulag um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2002. Heildaraflamarkið var ákveðið 850.000 lestir og er því óbreytt frá árinu 2001.Við ákvörðun heildaraflamarks er nú í fyrsta skipti byggt á þeirri nýtingarstefnu sem aðilar samþykktu haustið 1999 og er það jafnframt í samræmi við tillögu ráðgjafanefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jóhann Ársælsson rita undir álitið með fyrirvara.
    Einar K. Guðfinnsson og Lára Margrét Ragnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 10. des. 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Þórunn Sveinbjarnardóttir,


með fyrirvara.



Árni R. Árnason.


Steingrímur J. Sigfússon,


með fyrirvara.


Jónína Bjartmarz.



Jóhann Ársælsson,


með fyrirvara.