Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 546  —  282. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. nr. 73/2001, um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi.

Frá meiri hluta samgöngunefndar (GHall, ArnbS, SI, MS, ÞKG).



     1.      Við bætist ný grein er verði 1. gr. og orðist svo:
             Við 1. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Vegagerðinni er heimilt að veita almennt leyfi skv. 4. gr. til aksturs skólabifreiða, enda þótt slíkar bifreiðar rúmi færri en níu farþega.
     2.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
              a.      Í stað fjárhæðarinnar „1.000“ í 1. og 2. tölul. 2. mgr. kemur: 1.400.
              b.      4. tölul. 2. mgr. fellur brott.